Greinar

Að finna þitt Kærleiks táknmál

Finnst þér þú vera elskuð/elskaður af maka þínum? Finnst maka þínum hann vera elskaður af þér? Ef ekki, þá gæti það verið af því að þið hafið aldrei lært að ,,tala” táknmál kærleikans. Það er talað um að það séu fimm kærleiksþarfir sem við höfum, ein þeirra er í fyrsta sæti. Ef við fáum ekki þessa kærleiksþörf uppfyllta þá líður okkur ekki nægilega vel í sambandinu – hjónabandinu. Hvernig getum við fundið okkar táknmál – kærleiksþörf? Skoðaðu atriðin fimm hér fyrir neðan og athugaðu hvað gæti verið í fyrsta sæti hjá þér?

Viðurkenningarorð
Að notuð séu orð sem sýna viðurkenningu og kærleika.

Gæða tími - Samvera
Að þér sé gefin óskift athygli.

Að fá gjafir
Gjafir segja ,,hann/hún var að hugsa um mig”.

Þjónusta
Að gera eitthvað fyrir makann, sem þú veist að hann/hún vill láta gera fyrir sig.

Snerting
Blíð, kærleiksrík snerting.

Hvað særir þig mest?

Hvenær finnst þér þú vera elskuð/aður af maka þínum? Hvað þráir þú umfram öllu öðru? Ef svarið við þessum spurningum kemur ekki strax upp í hugann þá gæti verið gott að skoða neikveiða notkun á táknmáli kærleikans. Hvað segir maki þinn sem særir þig mest? Ef það neikvæða sem maki þinn segir, særir þig mest þá getur verið að þitt kærleiks táknmál sé ,,Viðurkennningar orð – orð sem sýna kærleika”.

Hvað bið ég oftast um?

Önnur leið til að finna þína kærleiksþörf eða kærleiks táknmál er að spyrja: ,,Hvað bið ég oftast um frá maka mínum eða fer fram á”? Eiginkona sagði eitt sinn: ,,Þegar ég spyr mig þessarar spurningar þá kemur í ljós að ég fer fram á gæðatíma – samveru. Aftur og aftur bið ég hann um að koma út að ganga eða að slökkva á sjónvarpinu í einn klukkutíma og tala við mig. Hann hlustar ekki á þessa ósk mína og þá kemur upp höfnunar tilfinning og mér finnst ég ekki elskuð.”

Haltu áfram að læra!

Hverju kvarta ég mest yfir?
Hvað fer ég oftast fram á?
Hvernig sýni ég öðrum kærleika minn?

Svaraðu þessum þrem spurningum og þá finnur þú þitt kærleiks táknmál.
Snúðu þeim við og þá finnur þú kærleiks táknmál maka þíns:
Hvað kvartar maki minn oftast yfir?
Hvað biður hann/hún oftast um?
Hvernig sýnir hann/hún öðrum kærleika?

Ein dýpsta þrá okkar er að finna að við séum elskuð af maka okkar. Lykillinn að því að mæta þörfum hvors annars fyrir kærleika, er að finna hvað það er sem fær hinn aðilann til að finnast hann vera elskaður og gera það reglulega. Ef þið ,,talið” ekki kærleiks táknmálið sem er í fyrsta sæti en ,,talar” öll hin þá finnst maka þínum hann ekki vera elskaður.

Farðu aftur yfir fimm táknmál kærleikans hér fyrir ofan.

Úr bókinni
The Five Love Languages: How to Express Heartfelt Commitment to Your Mate
eftir Dr Gary Chapman.

    Líf og framtíð

Meðferðir - Námskeið - Fyrirlestrar
Heim
Meðferðir
Hjartanærandi
uppeldi
Verndari barna
Hjónanámskeið
ADHD Hjálp
Tímastjórnun
Kærleiksþjónusta
Sálræn áfallahjálp
Greinar
Söngkennsla
Um okkur
Hafa samband
Tenglar
l%EDf_og_framt%ED%F0010014.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010013.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010012.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010011.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010010.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010009.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010008.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010007.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010006.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010005.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010004.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010003.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010002.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0010001.jpg