Ertu þreytt/ur í sambandinu? Telurðu að ástin sé horfin? Er endalaust þras eða rifrildi? Hefur orðið trúnaðarbrestur í sambandinu?
Í 95 % tilvika er hægt að lagfæra sambönd/hjónabönd sem ganga ekki nógu vel. Þú þarft að eyða sem svarar einni viku í vinnu við að lagfæra sambandið, er það ekki þess virði? Það tekur allt að 10 ár að jafna sig eftir skilnað og oftast tekur fólk vandamála halann með sér í næssta samband.
Námskeiðið er venjulega ein helgi eða fjögur kvöld, eftir því hvað hentar hverju sinni. Námskeiðið hentar jafnt ungum sem öldnum.
Notað er efnið úr PREPARE/ENRICH meðferðinni sem er þaulreynd hjónameðferð. Byrjað er upp á nýtt og sambandið byggt á styrkleikum sem flest pör hafa. Farið er í gegnum verkefnabók og fólki leiðbeint hvernig hægt er að vinna úr samskifta vanda og ágreiningsmálum.
Næsta hjónanámskeið fer að hefjast hjá Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði. Einnig erum við með einkatíma.
Skráning og upplýsingar í síma 615 2161
...
Fréttir
Lýsing
Meðferðir - Námskeið - Fyrirlestrar